Það tekur stuttan tíma og er einfalt að skrá sig:
Opnaðu skráningar síðuna.
Sláðu inn tölvupóstfangið þitt.
Mikilvæg er að þú lesir yfir skilmála ISX og ef þeir eru þér ásættanlegir þá hakar þú við það að þú hafir lesið þá og samþykkir.
Þegar þú hefur skráð þig verður þú send(ur) á auðkenningarsíðu island.is þar sem þú þarft að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum.
Að þessu loknu mun þér berast tölvupóstur með tímabundnu lykilorði.
Þegar þú svo skráir þig inn á ISX í fyrsta skiptið þá verður þú beðin um að velja þér nýtt lykilorð.
Að þessu loknu er mælt er með því að virkja tvíþátta auðkenningu með Google Authenticator í snjallsímum sínum.
Allir notendur geta millifært Bitcoin inn á reikninginn sinn eða lagt inn krónur á bankareikning Bálka Miðlunar ehf, sem er reksraraðili ISX og við það uppfærist sjálfkrafa ISK inneign notandanns á skiptimarkaðnum.