Öryggi notenda er fyrsta forgangsmál skiptimarkaðarins. Skiptimarkaðurinn er hannaður með bestu öryggisstöðlum og aðferðum sem völ er á. Tilgangurinn er að verja upplýsingar notenda og öryggi undirliggjandi netgjaldmiðla, sem og annara fjármuna, tryggja notendavænt viðmót og örugg viðskipti.


Mælst er til að allir notendur nýti sér auknar öryggisráðstafanir skiptimarkaðarins með tvíþátta auðkenningu, Google Authenticator, undir “Bættu við öryggi á reikninginn”. Tvíþátta öryggi tryggir að ekki sé hægt að ná yfirráðum yfir viðskiptareikningi notandans á skiptimarkaðnum, þó svo einhver óviðkomandi nái yfirráðum yfir tölvupósti notanda, þar sem síðari auðkenningin er bundin við snjallsíma notanda.