Það tekur stuttan tíma og er einfalt að skrá sig:

  • Opnaðu skráningar síðuna.

  • Sláðu inn tölvupóstfangið þitt.

  • Mikilvæg er að þú lesir yfir skilmála ISX og ef þeir eru þér ásættanlegir þá hakar þú við það að þú hafir lesið þá og samþykkir.

  • Þegar þú hefur skráð þig verður þú send(ur) á auðkenningarsíðu island.is þar sem þú þarft að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum. 

  • Að þessu loknu mun þér berast tölvupóstur með tímabundnu lykilorði.

  • Þegar þú svo skráir þig inn á ISX í fyrsta skiptið þá verður þú beðin um að velja þér nýtt lykilorð.


Að þessu loknu er mælt er með því að virkja tvíþátta auðkenningu með Google Authenticator í snjallsímum sínum.


Allir notendur geta millifært Bitcoin inn á reikninginn sinn eða lagt inn krónur á bankareikning Bálka Miðlunar ehf, sem er reksraraðili ISX og við það uppfærist sjálfkrafa ISK inneign notandanns á skiptimarkaðnum.